| Sæunn Stefánsdóttir |
|
|
|
Ég er fædd 4. ágúst 1978. Foreldrar mínir eru Stefán Þórarinsson (f. 1952), stjórnarformaður Nýsis hf. og Kristrún Þórðardóttir (f. 1954), sérkennari og höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferðaraðili. Systir mín er Svava Lóa Stefánsdóttir (f. 1983), sagnfræðingur Ég giftist Kjartani Erni Haraldssyni (f. 1977), jarðfræðingi og kennara, 8. janúar 2005 og búum við í Vesturbænum í Reykjavík. Við eignuðumst dóttur í maí 2008 sem heitir Kristrún Edda. Ég fæddist í Reykjavík og fluttist kornung til Seyðisfjarðar. Þar bjó ég og ólst upp fram að skólaaldri en þá fluttist ég með fjölskyldu minni aftur til Reykjavíkur, nánar tiltekið í Vesturbæinn þar sem ég hef búið síðan með rúmlega tveggja ára viðkomu á Grænhöfðaeyjum undan Afríkuströnd. Námsferill: Ég lauk námi í viðskiptafræði í Háskóla Íslands haustið 2003. Þar áður stundaði ég nám einn vetur í frönsku fyrir útlendinga við L’Universitè Paul Valery í Montpellier í Frakklandi. Árið 1998 varð ég stúdent af eðlisfræðibraut Menntaskólans í Reykjavík. Starfsferill: Frá því haustið 2007 hef ég unnið á skrifstofu rektors Háskóla Íslands sem sérfræðingur. Þingmaður var ég veturinn 2006-2007 eftir að Halldór Ásgrímsson lét af þingmennsku. Þar áður var ég aðstoðarmaður Jón Kristjánssonar, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, og síðar félagsmálaráðherra ásamt því að vera varaþingmaður frá 2003 til 2006. Með skóla vann ég lengst hjá Flugfélagi Íslands. Þar vann ég sumur og vetur í afgreiðslu og farmiðasölu á Reykjavíkurflugvelli frá stofnun félagsins 1999 til 2002. Ég var einnig flokksstjóri í Vinnuskóla Reykjavíkur og liðsmaður fatlaðs manns hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík svo eitthvað sé nefnt. Tók virkan þátt í stúdentapólitíkinni og var m.a. lánasjóðsfulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands 2001 til 2002. Félagsstörf:
Fyrir Framsóknarflokkinn hef ég gegnt ýmsum trúnaðarstörfum eins og:
Nefndir og ráð:
|