Sæunn Stefánsdóttir

Pistlar
Framsókn er lögð af stað Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Glæsilegt flokksþing okkar Framsóknarmanna er að baki. Ég leyni því ekki að auðvitað hefði ég viljað vinna kosningar um ritaraembættið enda hefði ég annars ekki gefið kost á mér. En ég er stolt af Framsókn fyrir þetta glæsilega þing, þær merkilegu ályktanir sem þar voru samþykktar t.d. um Evrópumál og stjórnlagaþing, og ég er stolt af fólkinu okkar, kraftinum, bjartsýninni og samhugnum sem það býr yfir.

Ég þakka innilega fyrir alla þá hlýju og stuðning sem ég hef fundið fyrir.

Framsókn stendur á tímamótum rétt eins og Íslendingar allir. Aldrei í seinni tíma sögu þjóðarinnar verða gerðar þær kröfur til stjórnmálamanna og flokka sem gerðar verða á næstu árum til okkar. Þess vegna þurfum við breytingar - þess vegna þurfum við að hugsa hlutverk stjórnmálamannsins og flokksins upp á nýtt. Framsókn er lögð af stað í þennan leiðangur en aðrir virðast daufheyrast.

 
Fjöldi spennandi ályktana Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Drög að ályktunum liggja fyrir flokksþingi Framsóknarmanna sem haldið verður nú um helgina. Ályktanadrögin, sem má sjá hér, eru afrakstur vinnu nokkurra málefnahópa sem starfað hafa frá miðstjórnarfundi okkar í haust.

Málefnanefnd flokksins hefur borið hitann og þungann af vinnunni með fjölda fólks í málefnahópunum og á allt þetta fólk þakkir skildar fyrir þessa miklu vinnu.

Þingfulltrúar munu svo fjalla um tillögurnar um helgina og afgreiða þær fyrir þinglok á sunnudaginn kemur. Sumar hafa vakið meiri athygli en aðrar og hafa fjölmiðlar t.a.m. fjallað um ályktunina um aðildarviðræður við Evrópusambandið og ályktunina um stjórnlagaþing.

Ég hvet ykkur til að kynna ykkur drögin að ályktunum og líka að taka þátt í þinginu um helgina. Munið að flokksþingið er opið öllum þeim Framsóknarmönnum sem skráðir eru í flokkinn þó einungis þingfulltrúar hafi atkvæðisrétt.

 
Stefnir í eitt fjölmennasta flokksþing Framsóknar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Af samtölum mínum við Framsóknarmenn síðustu daga er ljóst að það er mikil stemmning í flokknum. Fólk hlakkar til flokksþingins okkar um helgina. Það er spenna í loftinu og fólk skynjar þau tækifæri sem við eigum. Margir leggja mikið á sig til að koma á þingið. Fólk tekur sér frí frá vinnu. Þingfulltrúar utan af landi keyra um langan veg, eða fljúga, redda sér gistingu, sumir á hótelum og taka svo þátt í flokksþingi af miklum krafti. Þetta er sko ekkert sjálfsagt og Framsóknarflokkurinn er ríkur af öllu þessu fólki. Ég veit t.d. af einum fulltrúa úr Mosfellsbæ sem er við nám í Árósum og kemur heim sérstaklega þessa helgi til að taka þátt í þinginu. Algerlega frábært.

Á www.visir.is nú í kvöld er að finna skemmtilega frétt um flokksþingið okkar. Þar er bent á þá staðreynd að 78 ár skilja að yngsta og elsta þingfulltrúan. Sá elsti er Vilhjálmur Hjálmarsson, fyrrum ráðherra, eða Villi á Brekku en hann er 95 ára gamall. Það er skemmtilegt að segja frá því að ég heyrði í honum í dag en vegna erfiðrar færðar gerði hann ráð fyrir því að þurfa að fara sjóleiðina úr Mjóafirði svo hann gæti komist landleiðina suður. Það er ekki að spyrja að því.

Já, við erum svo sannarlega rík af öllu þessu góða fólki.

 
Með veislu í farangrinum Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Það var góður framboðsfundur á Akranesi í gærkvöldi. Fulltrúar félagsins á flokksþing mættu til að hlusta á okkur og leggja fyrir okkur spurningar. Það er ánægjulegt að sjá þessa góðu mætingu á alla fundi og finna þessi miklu stemmningu sem er að myndast fyrir flokksþingið. Eins og ég ræddi í pistli mínum í gær eru verkefni þingsins viðamikil. Margir hafa unnið að undirbúningi þess undanfarna daga og vikur. Það er mikið og óeigingjarnt starf og vil ég þakka það sérstaklega.

En er ekki rétt að skýra fyrir ykkur, þá pólitík, sem ég stend fyrir og um hvað mér finnst að við ættum að ræða í pólitíkinni þegar maður gefur áfram kost á sér til forystu í flokknum?

Lesa meira...
 
Flokksþing framundan –evrópumál, kosningar til forystu og margt, margt fleira Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Flokksþing okkar Framsóknarmanna er næstu helgi, eða dagana 16. til 18. janúar. Það kemur kannski ekki á óvart en það hefur einkum borið á umfjöllun um kjörið á forystu flokksins nú í aðdraganga þingsins. En fyrir þinginu liggja mörg spennandi mál sem unnið hefur að á vettvangi flokksins á undanförnum vikum.

Eins og sést á dagskrá þingsins verða Evrópumálin rædd á föstudeginum og sú ályktun sem málefnahópur hefur lagt drög að á undanförnum vikum. Við Framsóknarmenn höfum á undanförnum árum lagt mikla vinnu í að skoða evrópumálin, kosti og galla Evrópusambandsins og síðan gjaldmiðilsmálin sérstaklega. Nú í haust var opnuð sérstök Evrópugátt á heimasíðu flokksins þar sem er að finna m.a. þær skýrslur sem unnar hafa verið af okkar flokksfólki á síðustu árum sem og tenglar á helstu skýrslur sem unnar hafa verið um þessi mál á undanförum árum af hinum ýmsu aðilum. Ég hvet ykkur til að kíkja á Evrópugáttina og skoða hvað þar er að finna.

Á tímum sem þessum er mikilvægt að fólk komi saman og fari yfir stöðu mála, fari yfir hvað hefur farið úrskeiðis en ekki síst að það móti sér framtíðarsýn. Og það hefur fjöldi flokksmanna nú gert á undaförnum dögum og vikum. Undir stjórn málefnanefndar flokksins hafa einir sex málefnahópar starfað með fólki allsstaðar að og verður sú vinna undirstaða þeirra ályktana sem áfram verða unnar, ræddar og síðan afgreiddar næstu helgi. Þar er margt spennandi að finna og langar mig að vekja athygli á grein Jóns Kristjánssonar, fyrrum ráðherra og þingmanns, í Fréttablaðinu í morgun þar sem hann segir t.d. frá ályktun um stjórnlagaþing. Greinina er að finna í heild sinni hér fyrir neðan.

Lesa meira...
 
Að vera atvinnulaus er erfiðasta vinnan Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Þessi setning hefur setið í mér frá því á fyrirlestrarröð sem ég var á um mannlíf og kreppur sem haldinn í byrjun vikunnar í Háskóla Íslands. Sex fyrirlesarar, hagfræðingar, geðlæknar, sálfræðingur og vinnumarkaðsfræðingur fjölluðu um mannlíf og kreppur frá sínu sjónarhorni og var það afar áhugavert. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, vinnumarkaðsfræðingur, lét þau orð falla um atvinnuleysið að erfiðasta vinnan væri að vera án vinnu. Það er margt til í því.

Staðan er ógnvænleg á vinnumarkaði og horfurnar enn verri. Í dag eru sex sinnum fleiri án atvinnu en voru fyrir ári síðan. Þetta er gríðarleg breyting á skömmum tíma og því er spáð að seinna í vetur geti orðið svo að 20 þúsund manns verði atvinnulaus. Það mun snerta hverja fjölskyldu í landinu. Og uppsagnir hafa auðvitað ekki einungis áhrif á þann sem sagt er upp og hans nánustu. Ekki síður á þá sem eftir sitja. Í lokaritgerð minni í viðskiptafræðinni fjallaði ég einmitt um hvort það skipti einhverju máli hvernig fyrirtæki í þrengingum stæðu að uppsögnum og niðurskurði. Þar kom auðvitað ýmislegt fram en m.a. að þau fyrirtæki sem vönduðu til verka og styddu við bæði það fólk sem sagt hefði verið upp og það fólk sem eftir sæti ættu eftir að ná sér fyrr á strik. En þetta er nú útúrdúr.

Mikilvægasta verkefni stjórnvalda er að bregðast við þessu ástandi en ég er ansi hrædd um að vegna innbyrðis deilna þeirra og innanbúðarvanda í það minnsta annars stjórnarflokksins sé ekki verið að taka nógu fast á þessu stærsta viðfangsefni dagsins í dag.

Atvinnuleysið hefur eins og ég sagði komið við margar fjölskyldur og því miður hefur það ekki farið framhjá mér, minni fjölskyldu eða vinum og kunningjum. En ég vona að það geti hjálpað til að aðstæðurnar eru auðvitað allt annað en venjulegar og að atvinnumissirinn er ekki fólki sjálfu að kenna.

En hvað þarf þá að gera. Við þurfum að ýta af stað mannaflsfrekum verkefnum og þar á ríki að ganga á undan með góðu fordæmi. Styðja þarf við sveitarfélögin og auka aðgang þeirra að fjármagni því það gengur ekki að þau skeri niður allar framkvæmdir á tímum þessa mikla atvinnuleysis. Við þurfum líka nýja hugsun og nýjar lausnir og þora að hugsa út fyrir boxið og því styðja við bakið á nýsköpun og rannsóknum í háskólunum t.d.

Það er líka mikilvægt að styðja við atvinnulausa og auka aðgang að menntun á svona tímum. Gyldi Dalmann benti líka á í fyrirlestri sínum á leiðir eins og sjálfviljug starfslok, að minnka starfshlutfall, hvetja fólk í námsleyfi og það að lækka laun eins og reyndar mörg fyrirtæki á hinum almenna markaði hafa gripið til.

Ég tel einnig að við þurfum að gæta að því að halda fólki virku með því að opna upp á gátt öll þau úrræði á hendi ríkisins og sveitarfélaganna sem til eru. Opna félagsmiðstöðvar og aðra staði þar sem fólk getur komið saman og stutt við bakið á hverju öðru. Bara að komast út úr húsi og hitta annað fólk. Það er hægt að virkja fólk til allskonar mikilvægra verkefna í stað þess að það sitji eitt heima.

Það má ekki gleyma því að atvinnuleysi kostar samfélagið mikið, ekki einungis í efnahagslegu tilliti heldur hefur langvarandi atvinnuleysi líka djúp áhrif á þau einstaklinga sem í því lenda og allt þeirra umhverfi. Það er því til mikils að vinna. Framsóknarflokkurinn lofaði 12 þúsund nýjum störfum í aðdraganda kosninga 1995 og við það var staðið og gott betur. Það er kominn tími á Framsókn.

 

 

 
Vertu velkominn Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Á þessum sögulegu tímum á Framsóknarflokkurinn færi á því að verða fyrstur stjórnmálaflokka til að endurnýja flokksforystuna við þær aðstæður sem uppi eru í samfélaginu. Og um leið aðhleypa að nýrri kynslóð og nýjum vinnubrögðum. Þetta skynjar fólk og það er gaman að margir skuli vera að ganga til liðs við okkur til að taka þátt í endurreisninni.  Alla þá býð ég velkomna.

Sérstaklega vil ég nefna Guðmund Steingrímsson, Röskvumann, sem segir sjálfur í Fréttablaðinu í dag:

„Þessi ákvörðun byggist fyrst og fremst á því að innan Framsóknarflokksins hafa skapast forsendur til endurnýjunar, uppbyggingar og endurmats. Mér þykir virðingarvert að flokkurinn ætli að fara út í slíkt endurreisnarstarf og ég hyggst taka þátt í því af heilum hug,"

Eftir honum er haft að til mikils [sé]að vinna að endurreisa Framsókn, enda sé hann á þeirri skoðun að á Íslandi eigi að vera til frjálslyndur, framsækinn og tiltölulega öfgalaus flokkur sem horfi til félagshyggju. Einnig segist hann alls ekki sáttur við ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, eins og hann hafi áður látið í ljós

 Síðan segir hann:

„Ég get á engan hátt skrifað undir atburðarás síðustu mánaða sem hefur á köflum verið fáránleg og einkennst af fáti, fyrirhyggjuleysi og skorti á gagnsæi. Ég get ekki séð að þessi atburðarás rími við grundvallarhugsjónir Samfylkingarinnar, og ég veit að margir innan flokksins eru sammála mér um það."

Undir orð Guðmundar tek ég heilshugar og hlakka til að vinna með honum.

 
Flokkar eru fyrir fólk Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Framsóknarflokkurinn er 92 ára og er hann því elstur stjórnmálaflokka. Hugsjónir hans á grundvelli ungmennafélagshreyfingarinnar og samvinnuhreyfingarinnar eru í fullu gildi. Fólk vill stjórnmálaflokka með skýra stefnu og ný vinnubrögð. Við eigum að svara þessu kalli tímans. Umbrotatímar eru tímar endurmats og gefa okkur tækifæri til að móta okkur skýra framtíðarsýn. Í hvernig samfélagi viljum við búa? Ég vil leggja mitt af mörkum svo að Framsóknarflokkurinn verði það umbótaafl í íslensku samfélagi sem það þarfnast.

Ég gef kost á mér áfram sem ritari Framsóknarflokksins. Okkar framsóknarmanna bíður mikil vinna við endurreisn flokksins okkar og vil ég taka þátt í þeirri vinnu.

Framsóknarflokkurinn á þess kost að verða fyrstur stjórnmálaflokka til að endurnýja flokksforystuna við þær aðstæður sem uppi eru í samfélaginu. Hleypa að nýrri kynslóð og nýjum vinnubrögðum. Í þessari vinnu verðum við að endurskoða það sem betur hefði mátt fara og gera þau mál upp um leið og við verðum að halda fram því sem vel hefur verið gert. 

Framsóknarflokkurinn hefur átt í vök að verjast. Fyrir því eru margar ástæður. Að hluta til er því um að kenna að flokkurinn hefur verið of linur í samvinnu við aðra flokka og ekki haldið nægilega fram sinni stefnu og stefnumálum. Flokkurinn með sína glæsilegu fortíð hefur á tímum hugsað og hagað sér eins og smáflokkur, ekki þorað að hugsa nægilega stórt. Ég tel líka að hluti af vanda Framsóknarflokksins sé að hann hefur ekki náð að endurnýja sig, hleypa nýrri kynslóð að ákvarðanatökunni en ég vil tryggja að svo verði nú.

Ég er þeirrar skoðunar að flokkar eigi að vera fyrir fólk. Endurnýjaður Framsóknarflokkur þarf að hugsa um fólkið og fyrirtækin í landinu - en umfram allt fólk. Fólk í fyrirrúmi.

 
Gott og langt sumarfrí Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Eins og dyggir lesendur síðunnar hafa tekið eftir hefur síðan og síðuskrifari verið í löngu og góðu sumarfríi. Jafnvel tekið fríið svo alvarlega að hann hefur varla tekið sér penna í hönd eða sest við tölvuna svo neinu nemi.
Lesa meira...
 
Vel heppnað fegrunar- og hreinsiátak í Vesturbænum Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Á laugardaginn var fór fram fegrunar- og hreinsiátak í Vesturbænum en það er liður í verkefninu Tökum upp hanskann fyrir Reykjavík sem nýr borgarstjórnarmeirihluti hratt af stað síðasta sumar.
Lesa meira...
 
Fegrum Vesturbæ Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Vesturbæingar eru almennt stoltir af hverfinu sínu og líður þar vel. Reynslan sýnir að hafi fólk einhvern tímann búið í Vesturbænum vill það gjarnan búa þar áfram. Við höfum jú Vesturbæjarlaugina, íþróttafélagið okkar - KR, Ægisbúa, góða skóla, Melabúðina, Skerjafjörðinn, göngustíginn við Ægisíðuna, Háskólabíó, Landakotstúnið, okkar gróna hverfi og svona mætti áfram telja. En alltaf má gera gott betra.
Lesa meira...
 


Síða 1 af 6