|
Á þessum sögulegu tímum á Framsóknarflokkurinn færi á því að verða fyrstur stjórnmálaflokka til að endurnýja flokksforystuna við þær aðstæður sem uppi eru í samfélaginu. Og um leið aðhleypa að nýrri kynslóð og nýjum vinnubrögðum. Þetta skynjar fólk og það er gaman að margir skuli vera að ganga til liðs við okkur til að taka þátt í endurreisninni. Alla þá býð ég velkomna.
Sérstaklega vil ég nefna Guðmund Steingrímsson, Röskvumann, sem segir sjálfur í Fréttablaðinu í dag:
„Þessi ákvörðun byggist fyrst og fremst á því að innan Framsóknarflokksins hafa skapast forsendur til endurnýjunar, uppbyggingar og endurmats. Mér þykir virðingarvert að flokkurinn ætli að fara út í slíkt endurreisnarstarf og ég hyggst taka þátt í því af heilum hug,"
Eftir honum er haft að til mikils [sé]að vinna að endurreisa Framsókn, enda sé hann á þeirri skoðun að á Íslandi eigi að vera til frjálslyndur, framsækinn og tiltölulega öfgalaus flokkur sem horfi til félagshyggju. Einnig segist hann alls ekki sáttur við ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, eins og hann hafi áður látið í ljós
Síðan segir hann:
„Ég get á engan hátt skrifað undir atburðarás síðustu mánaða sem hefur á köflum verið fáránleg og einkennst af fáti, fyrirhyggjuleysi og skorti á gagnsæi. Ég get ekki séð að þessi atburðarás rími við grundvallarhugsjónir Samfylkingarinnar, og ég veit að margir innan flokksins eru sammála mér um það."
Undir orð Guðmundar tek ég heilshugar og hlakka til að vinna með honum. |