Á föstudaginn var lá leið okkar Jóns Sigurðssonar á Patreksfjörð. Með okkur í för var Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra og oddviti okkar Framsóknarmanna í norðvesturkjördæmi. Fyrir áramót fór forysta flokksins í mikla fundarherferð um landið og féll fundur okkar á Patreksfirði niður vegna veðurs. Úr því bættum við nú með opnum fundi á föstudagskvöldið í félagsheimilinu á Patreksfirði.
Um morguninn flugum við vestur með Flugfélaginu Erni og var áætlunarfluginu lent á Patreksfirði þar eð farþegafjöldinn var svo mikill að það útheimti stærri vél en vanalega. Þar tók Sigurður Viggósson, formaður Framsóknarfélagsins á svæðinu, á móti okkur, og nutum við leiðsagnar hans þann daginn. Leið okkar lá fyrst á Tálknafjörð og svo á Bíldudal og kynntum við okkur atvinnulífið í bæjunum og fleira. Mjög gaman var að koma í Kalkþörugaverksmiðjuna á Bíldudal svo ég nefni eitthvert þeirra fyrirtækja sem við heimsóttum. Þar er verið að gera allt klárt fyrir opnunina í lok mánaðarins en reksturinn mun fara svo á fullt í sumar. Að sama skapi var heimsóknin í Odda á Patreksfirði ánægjuleg en því stjórnar Sigurður af röggsemi með sínu fólki.
Opni fundurinn tókst vel að mínu mati. Að loknum framsögum okkar Jóns og Magnúsar voru góðar umræður og fjölda spurninga var beint til okkar. Upp úr stóð krafa heimamanna um bættar samgöngur og flutning opinberra starfa út á land. Það get ég vel skilið. Og þar þurfum við að gera betur. Þó margt hafi áunnist er ég þeirrar skoðunar að stefnan sem tekin var upp á tímum Viðeyjarstjórnarinnar um að hafna sértækum aðgerðum í byggðamálum hafi verið mistök.
Í allt var ferðin mjög ánægjuleg og fræðandi og þó ég viðurkenni að þreyta hafi setið í mér um helgina vegna keyrslunnar heim þessa nótt var það vel þess virði.
Við Framsóknarmenn viljum áfram framfarir og skiljum vel hvað þarf að gera til að afla tekna sem standa undir fjárfestingu okkar í enn betri menntun, velferðarkerfi og til að tryggja blómlega byggð um land allt.
Við kjósum áfram framfarir – við kjósum árangur.