Sæunn Stefánsdóttir

Framsókn er lögð af stað Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 21. janúar 2009

Glæsilegt flokksþing okkar Framsóknarmanna er að baki. Ég leyni því ekki að auðvitað hefði ég viljað vinna kosningar um ritaraembættið enda hefði ég annars ekki gefið kost á mér. En ég er stolt af Framsókn fyrir þetta glæsilega þing, þær merkilegu ályktanir sem þar voru samþykktar t.d. um Evrópumál og stjórnlagaþing, og ég er stolt af fólkinu okkar, kraftinum, bjartsýninni og samhugnum sem það býr yfir.

Ég þakka innilega fyrir alla þá hlýju og stuðning sem ég hef fundið fyrir.

Framsókn stendur á tímamótum rétt eins og Íslendingar allir. Aldrei í seinni tíma sögu þjóðarinnar verða gerðar þær kröfur til stjórnmálamanna og flokka sem gerðar verða á næstu árum til okkar. Þess vegna þurfum við breytingar - þess vegna þurfum við að hugsa hlutverk stjórnmálamannsins og flokksins upp á nýtt. Framsókn er lögð af stað í þennan leiðangur en aðrir virðast daufheyrast.

 
Fjöldi spennandi ályktana Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 15. janúar 2009

Drög að ályktunum liggja fyrir flokksþingi Framsóknarmanna sem haldið verður nú um helgina. Ályktanadrögin, sem má sjá hér, eru afrakstur vinnu nokkurra málefnahópa sem starfað hafa frá miðstjórnarfundi okkar í haust.

Málefnanefnd flokksins hefur borið hitann og þungann af vinnunni með fjölda fólks í málefnahópunum og á allt þetta fólk þakkir skildar fyrir þessa miklu vinnu.

Þingfulltrúar munu svo fjalla um tillögurnar um helgina og afgreiða þær fyrir þinglok á sunnudaginn kemur. Sumar hafa vakið meiri athygli en aðrar og hafa fjölmiðlar t.a.m. fjallað um ályktunina um aðildarviðræður við Evrópusambandið og ályktunina um stjórnlagaþing.

Ég hvet ykkur til að kynna ykkur drögin að ályktunum og líka að taka þátt í þinginu um helgina. Munið að flokksþingið er opið öllum þeim Framsóknarmönnum sem skráðir eru í flokkinn þó einungis þingfulltrúar hafi atkvæðisrétt.

 
Stefnir í eitt fjölmennasta flokksþing Framsóknar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 14. janúar 2009

Af samtölum mínum við Framsóknarmenn síðustu daga er ljóst að það er mikil stemmning í flokknum. Fólk hlakkar til flokksþingins okkar um helgina. Það er spenna í loftinu og fólk skynjar þau tækifæri sem við eigum. Margir leggja mikið á sig til að koma á þingið. Fólk tekur sér frí frá vinnu. Þingfulltrúar utan af landi keyra um langan veg, eða fljúga, redda sér gistingu, sumir á hótelum og taka svo þátt í flokksþingi af miklum krafti. Þetta er sko ekkert sjálfsagt og Framsóknarflokkurinn er ríkur af öllu þessu fólki. Ég veit t.d. af einum fulltrúa úr Mosfellsbæ sem er við nám í Árósum og kemur heim sérstaklega þessa helgi til að taka þátt í þinginu. Algerlega frábært.

Á www.visir.is nú í kvöld er að finna skemmtilega frétt um flokksþingið okkar. Þar er bent á þá staðreynd að 78 ár skilja að yngsta og elsta þingfulltrúan. Sá elsti er Vilhjálmur Hjálmarsson, fyrrum ráðherra, eða Villi á Brekku en hann er 95 ára gamall. Það er skemmtilegt að segja frá því að ég heyrði í honum í dag en vegna erfiðrar færðar gerði hann ráð fyrir því að þurfa að fara sjóleiðina úr Mjóafirði svo hann gæti komist landleiðina suður. Það er ekki að spyrja að því.

Já, við erum svo sannarlega rík af öllu þessu góða fólki.

 


Síða 1 af 22