Landfuglar
Landfuglar svífa á fjallavængjum, teygja fram fosshálsa og sperra sín mosastél.
Þegar pappírsferningur er brotinn saman í fugl þá sést aðeins hluti yfirborðsins. Skemmtileg örnefni lenda kannski inni í vængnum eða undir goggnum þannig að ekki er hægt að lesa þau, en þau eru þarna samt og koma í ljós ef fuglinn er tekinn í sundur seinna meir. Þegar ég handfjatla kortin rýni ég í örnefnin og reyni að átta mig á hvað hver fugl heitir. Þannig hef ég fundið jökulhana, fjarðarkollur, nesjanefi, látralóur og margar aðrar áhugaverðar tegundir. Ég mæli með því að eigendur landfugla gefi sér tíma til að rýna í örnefnin á sínum fuglum og gefa þeim nöfn.
Haustið 2006 sá ég gömul landshlutakort af Íslandi í stöflum í Bókval á Akureyri. Þau kostuðu næstum því ekki neitt. Þetta voru landshlutarnir sem enginn hafði viljað kaupa, endalaus Langanes, afskipt svæði á hálendinu, ystu tangar á Vestfjörðum. Ég fann til með þessum landshlutum sem höfðu orðið útundan og keypti öll kortin. Svo fór ég á bókasafnið og fékk lánaða bók um origami og lærði að brjóta fugla.
Oftast sker ég hvert landshlutakort í nokkra minni landshluta og bý til fugl úr hverjum þeirra, en stundum verður eitt kort einn fugl. Kortin bíða þess svo í fuglslíki að vera brotin aftur í sundur, sléttuð og látin vísa veginn af stað.